2-1 sigur hjá U17 karla gegn Finnlandi
U17 karla vann 2-1 sigur gegn Finnlandi í fyrri af tveimur vináttuleikjum liðanna.
Leikurinn fór fram á Myyrmäen jalkapallostadion í Vantaa. Liðin mætast svo aftur á föstudag á Mustapekka Areena í Helsinki.
William Cole Campbell kom Íslandi yfir strax á fyrstu mínútu leiksins, en Finnar jöfnuðu í lok fyrri hálfleiks. Ásgeir Galdur Guðmundsson kom Íslandi aftur yfir í upphafi síðari hálfleiks og 2-1 sigur Íslands staðreynd.
Byrjunarliðið
Heiðar Máni Hermannsson (M)
Kristján Snær Frostason
Arngrímur Bjartur Guðmundsson
Lúkas Magni Magnason
Daníel Freyr Kristjánsson
Jóhannes Kristinn Bjarnason
Rúrik Gunnarsson (F)
Ásgeir Galdur Guðmundsson
William Cole Campbell
Ágúst Orri Þorsteinsson
Daníel Tristan Guðjohnsen