A kvenna í 16 sæti heimslista FIFA
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland fer upp um eitt sæti á nýjasta heimslista FIFA og situr liðið nú í 16. sæti.
Ísland hefur ekki leikið neina leiki síðan síðasta útgáfa listans kom út þann 25. júní. Næsta verkefni liðsins er fyrsti leikur þess í undankeppni HM 2023, en Ísland mætir þar Hollandi. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli 21. september og hefst hann kl. 18:45.
Ásamt Íslandi og Hollandi eru Tékkland, Hvíta Rússland og Kýpur einnig í riðlinum.