Breiðablik úr leik í Sambandsdeild Evrópu
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik er úr leik í Sambandsdeildinni eftir tap gegn Aberdeen í Skotlandi á fimmtudag.
Fyrri leikur liðanna endaði með 3-2 sigri Aberdeen, en liðin mættust öðru sinni á fimmtudag. Aberdeen komst yfir í upphafi síðari hálfleiks, en Gísli Eyjólfsson jafnaði metin á 59. mínútu leiksins. Heimamenn komust svo aftur yfir á 71. mínútu og þar við sat. Svekkjandi tap staðreynd í Skotlandi og Aberdeen fer áfram í lokaumferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Næsta verkefni hjá Breiðablik er leikur gegn ÍA á mánudaginn í Pepsi Max deild karla.