Eins marks tap Breiðabliks í hörkuleik
Breiðablik mætti skoska liðinu Aberdeen á Laugardalsvelli í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar (UEFA Europa Conference League) í kvöld, fimmtudagskvöld.
Gestirnir byrjuðu leikinn betur og voru komnir í tveggja marka forystu snemma leiks - skoruðu eftir hornspyrnur á 3. og 11. mínútum leiksins. Blikar létu þetta ekki slá sig út af laginu, tóku smám saman öll völd á vellinum með góðu spili og sköpuðu mikinn usla í vörn skoska liðsins, sem náði þó nokkrum hættulegum skyndisóknum. Studdir dyggilega af frábærum stuðningsmönnum sínum náðu liðsmenn Breiðabliks að jafna metin. Fyrst skoraði Gísli Eyjólfsson á 16. mínútu eftir góðan undirbúning Árna Vilhjálmssonar og Árni skoraði síðan sjálfur úr vítaspyrnu á 43. mínútu.
Síðari hálfleikur byrjaði að mörgu leyti eins og sá fyrri og Aberdeen náði forystunni að nýju með marki á 49. mínútu. Nokkuð jafnræði var með liðunum eftir þetta og þrátt fyrir nokkur góð tækifæri tókst hvorugu liði að bæta við marki og lokatölur því 2-3 sigur Aberdeen. Frammistaða Blikaliðsins í kvöld var afar góð gegn sterku liði gestanna og verður spennandi að sjá seinni viðureign liðanna, en þau mætast aftur í næstu viku á Pittodrie leikvanginum, heimavelli Aberdeen í Skotlandi.
Allt um Sambandsdeildina á vef UEFA
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net