Þorvaldur dæmir í Sambandsdeildinni
Leikið er í Sambandsdeild UEFA (UEFA Conference League) í vikunni og eru íslenskir dómarar að störfum. Þorvaldur Árnason verður með flautuna í leik FC Levadia Tallinn frá Eistlandi og írska liðsins Dundalk, en liðin mætast í Tallinn fimmtudaginn 29. júlí. Aðstoðardómarar í leiknum verða þeir Birkir Sigurðarson og Andri Vigfússon, og fjórði dómari verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson. Þetta er seinni leikur Levadia og Dundalk, en liðin gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leiknum, sem fram fór á Tallaght Stadium í Dublin.
Allt um Sambandsdeildina á vef UEFA
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net