Seinni leikirnir í Sambandsdeildinni í vikunni
Seinni leikirnir í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar UEFA fara fram í vikunni og þar eru þrjú íslensk félagslið í eldlínunni. Allir leikirnir þrír fara fram á fimmtudag - Valur og FH eiga útileik en Breiðablik leikur á Kópavogsvelli.
Staða liðanna er nokkuð ólík. Valur og FH biðu lægri hlut í fyrri leikjum sínum á heimavelli - Valsmenn töpuðu með þriggja marka mun fyrir Bodö/Glimt á Origo-vellinum í fyrri leiknum og FH-ingar töpuðu með tveggja marka mun gegn Rosenborg í Kaplakrika. Blikar hins vegar gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum, sem fram fór á Viola Park í Vín. Seinni leikurinn fer fram sem fyrr segir á Kópavogsvelli og hefst kl. 17:30.
Skoða allar upplýsingar um Sambandsdeildina á vef UEFA
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net