Minnisvarði um Hafstein Guðmundsson
Fyrir leik Keflavíkur og Breiðabliks í Pepsi Max deild karla á sunnudag var afhjúpaður minnisvarði við Keflavíkurvöll um Hafstein Guðmundsson, sem fæddist árið 1923 og lést árið 2013 og hefur oft verið kallaður faðir knattspyrnunnar í Keflavík. Hafsteinn lék með Val áður en hann gekk til liðs við Keflvíkinga um miðjan sjötta áratug síðustu aldar. Hann var í fyrsta landsliði Íslands sem lék gegn Danmörku árið 1946, lék alls 4 landsleiki á árunum 1946-1951 og var landsliðseinvaldur árin 1969-1973.
Frá undirbúningsnefnd minnisvarðans:
Hafsteinn var aðalhvatamaður þess að Íþróttabandalag Keflavíkur (ÍBK) var stofnað árið 1956 og gegndi formennsku þess frá upphafi til 1975. Hann var spilandi þjálfari Keflavíkurliðsins á árunum 1958-1960. Í formannstíð Hafsteins varð ÍBK fjórum sinnum Íslandsmeistari á mesta blómaskeiði knattspyrnunnar í Keflavík. Fyrst 1964 og síðan 1969,1971 og 1973 og ÍBK varð einnig bikarmeistari 1975. Hafsteinn er með réttu nefndur faðir knattspyrnunnar í Keflavík. Hann var formaður Ungmennafélags Keflavíkur 1978-1981, sat í stjórn KSÍ og var landsliðseinvaldur 1969-1973. Hafsteinn var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu, heiðurskrossi ÍSÍ, heiðurskrossi KSÍ, gullmerki ÍBK, heiðursgullmerki Keflavíkur, gullmerki Knattspyrnudeildar Keflavíkur og hann var heiðursfélagi UMFK.
Mynd með grein (frá vinstri): Guðni Bergsson formaður KSÍ, Sigurður Garðarsson formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, og Rúnar Arnarsson formaður undirbúningsnefndar.