Moli á fleygiferð um landið
Siguróli Kristjánsson, eða Moli, hefur verið á ferð og flugi í sumar með verkefnið Komdu í fótbolta með Mola.
Moli hefur nú þegar heimsótt 39 staði og hafa 753 krakkar mætt á æfingar hjá honum. Verkefnið er enn í fullum gangi og er áætlað að það standi yfir til loka ágústmánaðar.
Á heimasíðu KSÍ má finna frekari upplýsingar um verkefnið, myndir frá heimsóknum Mola og dagskrá verkefnisins, en hún er uppfærð vikulega.