UEFA afnemur reglu um mörk á útivelli
Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) hefur ákveðið að afnema regluna um mörk á útivöllum í Evrópukeppnum félagsliða frá og með keppnistímabilinu 2021/2022. Breytingin tekur gildi strax í forkeppni Evrópumótanna í ár og hefur þannig áhrif á þau íslensku félagslið sem leika í mótum UEFA. Í karlaflokki leika Valur (Champions League), Breiðablik, Stjarnan og FH (Conference League) í Evrópukeppnum og í kvennaflokki Breiðablik og Valur (Champions League).