Dregið í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið hefur verið í aðra umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar, en leikirnir fara fram dagana 22. og 29. júlí.
Tapi Valur viðureign sinni gegn Dinamo Zagreb í forkeppni Meistaradeildar Evrópu færist liðið yfir í aðra umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Hér að neðan má sjá mögulegar viðureignir íslensku liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Viðureignirnar
Valur/Dinamo Zagreb - Bodo Glimt/Legia Warsaw
FH/Sligo Rovers - Rosenborg
FK Austria Wien - Breiðablik/FC Racing Union
F91 Dudelange - Stjarnan/Bohemian FC