Verkefnið "Komdu í fótbolta" fer aftur á stað á fimmtudag
Verkefnið "Komdu í fótbolta" fer aftur af stað á fimmtudag, en Siguróli Kristjánsson, oftast kallaður Moli, hefur haft umsjón með verkefninu undanfarin tvö ár.
Moli hefur farið vítt og breitt um landið, heimsótt fjölmarga staði og hitt fullt af fólki í smærri sveitarfélögum landsins. Hann mun hefja sumarið á heimsóknum til Siglufjarðar, Dalvíkur og Ólafsfjarðar.
Verkefnið verður stærra í sniðum í sumar og fleiri staðir heimsóttir en undanfarin tvö ár og stendur verkefnið til 15. október. Moli mun heimsækja fjölmarga staði á leið sinni um landið, þar sem Panna-völlurinn sívinsæli verður með í för.
Dagskrá vikunnar
Fimmtudagurinn 27. maí
Siglufjörður kl. 13:30 - 15:00
Dalvík kl. 15:30 - 17:00
Föstudagurinn 28. maí
Ólafsfjörður kl. 13:10 - 15:10