Hámarksfjöldi áhorfenda í hverju hólfi hækkar í 300 manns
Á vef Stjórnarráðsins er greint frá því að verulega verði dregið úr samkomutakmörkunum frá 25. maí. Á meðal þess sem fram kemur er að hámarksfjöldi áhorfenda eða gesta á sitjandi viðburðum hækkar úr 150 í 300 manns í hverju sóttvarnahólfi og veitingasala í hléi verður heimil. Grímuskyldan gildir áfram fyrir áhorfendur á íþróttaviðburðum. Reglugerð um þessar breytingar gildir til 16. júní.
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net