Ísland mætir Írlandi í tveimur vináttuleikjum í júní
A kvenna mætir Írlandi í tveimur vináttuleikjum í júní og fara þeir báðir fram á Laugardalsvelli.
Fyrri leikurinn fer fram 11. júní og sá síðari 15. júní.
Leikirnir verða með síðustu vináttuleikjum liðsins fyrir upphaf undankeppni HM 2023. Ísland er þar í riðli með Hollandi, Tékklandi, Hvíta Rússlandi og Kýpur, en stelpurnar mæta Hollandi í fyrsta leik sínum í undankeppninni 21. september á Laugardalsvelli.
Liðin hafa mæst fimm sinnum í gegnum tíðina. Ísland hefur unnið tvo leiki og þrír hafa endað með jafntefli. Ísland og Írland mættust síðast 8. júní 2017 og fór leikurinn fram á Írlandi, en um vináttuleik var að ræða. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Liðin mættust einnig í umspili undankeppni EM 2009, en þar hafði Ísland betur 4-1 samanlagt.