Dregið í Mjólkurbikar karla og kvenna á þriðjudag
Dregið verður í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla og 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna á þriðjudag. Drátturinn hefst kl. 12:00 og fer hann fram í stúdíói hjá Stöð 2 á Suðurlandsbraut, en sýnt verður beint frá honum á Vísi og Stöð 2.
32-liða úrslit Mjólkurbikars karla fara fram dagana 22.-24. júní, en liðin í Pepsi Max deild karla koma nú inn í keppnina ásamt þeim 20 félögum sem unnu sína leiki í 2. umferð.
16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna fara fram 31. maí - 1. júní og bætast liðin í Pepsi Max deild kvenna við þau sex félög sem tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum.
Mjókurbikar karla
Liðin í pottinum eru:
Pepsi Max deild
- Valur
- FH
- Breiðablik
- Stjarnan
- KR
- Fylkir
- Keflavík
- Leiknir R.
- ÍA
- HK
- KA
- Víkingur R.
Lengjudeildin
- Grindavík
- ÍBV
- Grótta
- Fram
- Víkingur Ó.
- Vestri
- Þór
- Afturelding
- Fjölnir
2. deild
- Haukar
- Leiknir F.
- Njarðvík
- KF
- Völsungur
- Kári
- ÍR
3. deild
- Sindri
- KFS
- Augnablik
4. deild
- Úlfarnir
Mjólkurbikar kvenna
Pepsi Max deild
- Breiðablik
- Valur
- Selfoss
- Fylkir
- Stjarnan
- Keflavík
- Tindastóll
- Þróttur R.
- Þór/KA
- ÍBV
Lengjudeild
- KR
- Afturelding
- FH
- Grindavík
2. deild
- Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F.
- Völsungur