Leikdagar í undankeppni HM 2023 staðfestir
UEFA hefur staðfest leikdaga Íslands í undankeppni HM 2023, en liðið er þar í riðli með Hollandi, Tékklandi, Hvíta Rússlandi og Kýpur.
Ísland hefur leik gegn Evrópumeisturum Hollands þann 21. september næstkomandi, en fyrstu þrír leikir liðsins í riðlinum verða heimaleikir. Síðasti leikur Íslands í undankeppninni verður svo ytra gegn Hollandi.
Leikir Íslands
21. september 2021 - Ísland - Holland
22. október 2021 - Ísland - Tékkland
26. október 2021 - Ísland - Kýpur
30 nóvember 2011 - Kýpur - Ísland
7. apríl 2022 - Hvíta Rússland - Ísland
12. apríl 2022 - Tékkland - Ísland
2. september 2022 - Ísland - Hvíta Rússland
6. september 2022 - Holland - Ísland