A kvenna í 17. sæti á FIFA-listanum
A landslið kvenna fellur um eitt sæti á styrkleikalista FIFA sem gefinn var út fyrir helgi og situr nú í 17. sæti listans. Meðalstaða íslenska liðsins á listanum fá upphafi er 18. sæti og hæst hefur liðið farið upp í 15. sæti.
Bandaríkin og Þýskaland eru sem fyrr í efstu tveimur sætunum en Holland mjakar sér upp fyrir Frakkland í 3. sætið. Norður-Írland er það lið sem bætir sig mest í stigasöfnun og Hvíta-Rússland er hástökkvarinn að þessu sinni, eina liðið sem hækkar sig um tvö sæti.