Ný leikjadagskrá í Pepsi Max deild karla og Mjólkurbikar karla
Ný niðurröðun í forkeppni Mjólkurbikars karla og uppfærð niðurröðun leikja í umferðum 1-7 í Pepsi Max deild karla hefur verið birt á vef KSÍ og send félögum.
Felögum í Pepsi Max deild karla hefur verið gefinn frestur til að gera athugasemdir við niðurröðun leikja í deildinni og stefnt er að því að að staðfesta niðurröðunina fljótlega í næstu viku.
Ekki er svigrúm fyrir fresti til athugasemda vegna leikja í 1. umferð Mjólkurbikar karla.
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net