Upphaf knattspyrnumóta sumarsins 2021
Hefja má aftur æfingar og keppni í íþróttum fimmtudaginn 15. apríl skv. reglugerð Heilbrigðisráðherra. Mótanefnd KSÍ hefur ákveðið að upphaf knattspyrnumóta sumarsins verði með eftirfarandi hætti:
Mjólkurbikar karla
- Keppni Mjólkurbikars karla hefst 23. apríl og verður 1. umferð keppninnar leikin dagana 23. - 25. apríl.
- 2. umferð verður leikin 30. apríl - 3. maí. Aðalkeppnin hefst svo í júní.
- Föstudaginn 16. apríl verða nýjar dagsetningar leikja Mjólkurbikarsins kynntar.
Pepsi Max deild karla
- 1. umferð Pepsi Max deildar karla verður leikin dagana 30. apríl - 2. maí.
- Föstudaginn 16. apríl verður ný niðurröðun leikja Pepsi Max deildar karla kynnt.
- Endurröðun mótsins nær í meginatriðum til fyrstu 5 umferðanna.
Önnur mót meistaraflokka
- Gert er ráð fyrr að önnur mót sumarsins í meistaraflokki verði leikin skv. núverandi leikjadagskrá.
- Hér er átt við Pepsi Max deild kvenna, Mjólkurbikar kvenna, Lengjudeild karla og kvenna, 2. deild karla og kvenna, 3. deild karla og 4. deild karla.
- Ákvarðanir um framhald Lengjubikarsins og Meistarakeppni KSÍ verður rædd á fundi stjórnar KSÍ fimmtudaginn 15. apríl.
Mót yngri flokka
- Vinna við uppsetningu á Íslandsmótum og bikarkeppnum yngri flokka er í fullum gangi.
- Gert er ráð fyrir að keppni yngri flokka hefjist skv. núverandi leikjadagskrá.
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net