KSÍ tilnefnt til íslensku auglýsingaverðlaunanna í tveimur flokkum
Tilnefningar til íslensku auglýsingaverðlaunanna 2020, Lúðursins, voru kynntar í vikunni. KSÍ er þar tilnefnt til verðlauna í tveimur flokkum, annars vegar í flokknum "Umhverfisauglýsingar" og hins vegar í flokknum "Mörkun". Það eru ÍMARK, samtök íslensks markaðsfólks, í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA), sem standa að verðlaununum, sem eru veitt í 35. sinn í ár.
Tilnefning í flokknum "Mörkun" er vegna nýrrar ásýndar landsliða Íslands í knattspyrnu og merkis landsliðanna sem kynnt var á árinu 2020 með útfærslu á landvættunum fjórum. Tilnefning í flokknum "Umhverfisauglýsingar" er svo fyrir notkun merkis landsliðanna og fjórskiptingu landvættanna, meðal annars á hornfánum Laugardalsvallar fyrir landsleiki haustsins 2020.
Það er auglýsingastofan Brandenburg sem vann með KSÍ að endurmörkun vörumerkja sambandsins og þess má geta að Brandenburg er jafnframt hluti af mun fleiri tilnefningum.