Undankeppni eEURO 2021 í fullum gangi
Íslenska landsliðið í efótbolta lék á dögunum fyrri umferðina í undankeppni eEURO 2021.
Ísland er í riðli með Ítalíu, Portúgal, Englandi, Moldóvu og Norður Írlandi, en leikið er í PES. Leikmenn liðsins eru Aron Ívarsson, Muharram Emre Unal og Kristófer Baldur Sverrisson. Þjálfari liðsins er Evaldas Palikevicius.
Fyrri umferð undankeppninnar fór fram 29. mars, en strákarnir töpuðu þar öllum leikjunum. Seinni umferðin fer fram 26. apríl. Aðeins eitt lið fer áfram úr riðlinum í lokakeppnina, en liðið í 2. sæti fer í milliriðil þar sem keppt verður um sex laus sæti.