Tap í síðasta leik á EM 2021
U21 karla tapaði 0-2 gegn Frakklandi í síðasta leik liðsins á EM 2021.
Frakkar skoruðu tvö mörk í fyrri hálfleik og þar við sat. Íslenska liðið átti flotta kafla í leiknum, spiluðu vel saman og hefðu með smá heppni geta skorað. Á sama tíma vann Danmörk 3-0 sigur gegn Rússlandi og tryggði sér með því efsta sæti riðilsins. Frakkar enduðu í öðru sæti og fara þau bæði því áfram í 8-liða úrslit sem leikin verða í sumar.
Byrjunarliðið
Elías Rafn Ólafsson (M)
Valgeir Lunddal Friðriksson
Kolbeinn Birgir Finnsson
Róbert Orri Þorkelsson
Ari Leifsson (F)
Finnur Tómas Pálmason
Andri Fannar Baldursson
Kolbeinn Þórðarson
Mikael Neville Anderson
Valdimar Þór Ingimundarson
Brynjólfur Andersen Willumsson