Vilhjálmur Alvar dæmir í undankeppni HM 2022
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik Andorra og Ungverjalands í undankeppni HM 2022.
Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Sigurðsson og Birkir Sigurðarson. Fjórði dómari verður Ívar Orri Kristjánsson.
Leikurinn fer fram 31. mars á Estadi Nacional í Andorra La Vella og hefst hann kl. 18:45 að íslenskum tíma.