Viltu starfa á skrifstofu KSÍ?
Knattspyrnusamband Íslands óskar eftir að ráða starfsmann á innanlandssvið á skrifstofu KSÍ. Meginverkefni eru tengd mótamálum og niðurröðun móta, félagaskiptum og mannvirkjamálum, auk afleysinga og annarra tilfallandi verkefna. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á íslensku, ensku og hvers kyns tölvuvinnslu. Þá er æskilegt að umsækjandi hafi góða þekkingu á og brennandi áhuga fyrir knattspyrnu.
Umsóknarfrestur er til 19. mars og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ (klara@ksi.is). Umsóknum (ásamt sakavottorði) skal skilað með tölvupósti eigi síðar en 19. mars (klara@ksi.is).
Jafnréttisstefna og jafnréttisáætlun KSÍ
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net.