18 þátttökuleyfi útgefin á fyrri fundi leyfisráðs
Fyrri fundur leyfisráðs KSÍ í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2021 fór fram á miðvikudag. Teknar voru fyrir leyfisumsóknir félaga í efstu tveimur deildum karla og efstu deild kvenna. Þetta er í fyrsta sinn sem öll félög í efstu deild kvenna þurfa að undirgangast leyfiskerfi vegna keppni á Íslandsmótinu í knattspyrnu.
Alls voru 18 umsóknir um þátttökuleyfi samþykktar á fundi leyfisráðs, en afgreiðslu leyfisumsókna 16 félaga var frestað um eina viku. Ráðið kemur aftur saman á miðvikudag 17. mars.
Samþykktar leyfisumsóknir á fundi leyfisráðs 10. mars:
Samþykktar leyfisumsóknir í Pepsi Max deild karla:
- Breiðablik
- FH
- Fylkir
- HK
- ÍA
- Keflavík
- KR
- Leiknir R.
- Stjarnan
- Valur
- Víkingur R.
Samþykktar leyfisumsóknir í Pepsi Max deild kvenna
- Breiðablik
- Fylkir
- Keflavík
- Stjarnan
- Valur
Samþykktar leyfisumsóknir í Lengjudeild karla:
- Afturelding
- Fram