Lokaundirbúningur ársþings
75. ársþing KSÍ fer fram laugardaginn 27. febrúar - að þessu sinni rafrænt í gegnum fjarfundabúnað. Lokaundirbúningur fyrir þingið er í fullum gangi og er öll aðstaða í höfuðstöðvum KSÍ tilbúin, en þar verða starfsmenn þingsins staðsettir og þaðan verður þinginu stjórnað. Þingfulltrúar og gestir þingsins tengjast í gegnum fjarfundabúnað og þá verður einnig hægt að fylgjast með þinginu í beinni vefútsendingu á miðlum KSÍ.
Þingfulltrúum stendur til boða að "mæta" á æfingu fyrir þingið milli kl. 14:00 og 16:00 í dag föstudag, og prófa að tengjast þinginu og jafnframt að prófa kosningakerfið, og hafa allir þingfulltrúar verið hvattir til þess að nýta sér þennan möguleika.
Á ársþingsvefnum er að finna allar nauðsynlegar upplýsingar um ársþing KSÍ. Ársskýrsla stjórnar er nú í fyrsta sinn birt sem sérstök vefsíða í stað PDF-forms fyrri ára.
Vefútsending frá ársþingi (einnig hægt að fara á Youtube-síðu KSÍ)