KDN hlýtur dómaraverðlaun KSÍ
Knattspyrnudómarafélag Norðurlands (KDN) hlýtur dómaraverðlaun KSÍ fyrir árið 2020. Þetta var samþykkt á fundi stjórnar KSÍ þann 18. febrúar.
KDN hefur m.a. séð um framkvæmd Kjarnafæðismótsins undanfarin ár með miklum sóma. Í félaginu er öflugur hópur dómara, frábær félagsskapur sem leggur mikla áherslu á liðsheildina, gleðina og ánægjuna sem felst í því að starfa við knattspyrnu og knattspyrnuleiki.