Íþróttir fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir
Ungmennafélögin UMFN og Keflavík bjóða í sameiningu upp á námskeið í knattspyrnu og körfubolta fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir á aldrinum 6 -13 ára. Verkefnið er unnið í samstarfi við Íþróttasamband fatlaðra og Íþróttafélagið Nes.
Æfingarnar verða fjölbreyttar og skemmtilegar og öllum iðkendum mætt á þeirra forsendum. Námskeiðið hefst 28. febrúar og lýkur 25. apríl, gjald fyrir hvern iðkanda er 20.000 krónur. Skráning er hafin á keflavik.felog.is og umfn.felog.is
Nánari uplýsingar veita íþróttastjórar Keflavíkur og UMFN:
- Hjördís Baldursdóttir – hjordis@keflavik.is
- Hámundur Örn Helgason – fotbolti@umfn.is