500 dagar í EM 2022
Síðastliðinn sunnudag voru 500 dagar í fyrsta leik í úrslitakeppni EM A landsliða kvenna, sem fram fer á Englandi sumarið 2022. Keppnin áttu upphaflega að fara fram sumarið 2021, en var eins og kunnugt er frestað um eitt ár vegna kórónaveirufaraldursins.
Leikirnir í keppninni verða alls 31 - opnunarleikurinn fer fram á Old Trafford í Manchester 6. júlí og úrslitaleikurinn á Wembley í Lundúnum 31. júlí. Allir leikirnir verða að sjálfsögðu í beinni útsendingu sjónvarps auk viðamikillar umfjöllunar í útvarpi og öðrum miðlum, og mun ná til knattspyrnuáhugafólks um allan heim, fleiri en nokkru sinni fyrr. Aðrir leikstaðir en nefndir eru hér að framan eru þessir:
- Brighton & Hove (Brighton & Hove Community Stadium)
- London (Brentford Community Stadium & Wembley Stadium – final only)
- Manchester (Manchester City Academy Stadium)
- Milton Keynes (Stadium MK)
- Rotherham (New York Stadium)
- Sheffield (Bramall Lane)
- Southampton (St Mary's Stadium)
- Trafford (Old Trafford – opening game)
- Wigan & Leigh (Leigh Sports Village)
Miðasala á leiki keppninnar fer að öllu leyti í gegnum miðasöluvef UEFA.
Smellið hér að neðan til að skoða allt um EM 2020. Dregið verður í umspilsleikina 5. mars næstkomandi. Ísland hefur þegar tryggt sæti sitt í úrslitakeppninni - fjórða EM-úrslitakeppni A landsliðs kvenna í röð.