Ísland í H riðli í undankeppni eEuro 2021 í PES
Ísland er í riðli H í undankeppni eEuro 2021 í PES, en þetta er í annað skiptið sem Ísland tekur þátt í keppninni.
Í undankeppninni mætir Ísland Ítalíu, Englandi, Portúgal, Moldóvu og Norður Írlandi. Þess má geta að Ítalir eru ríkjandi Evrópumeistarar í PES, en þeir unnu Serbíu í úrslitaleiknum fyrir ári síðan.
Upplýsingar um leikdaga koma á næstu dögum og verða þeir auglýstir hér á vef KSÍ þegar þar að kemur.