• þri. 09. feb. 2021
  • Mótamál
  • Pepsi Max deildin

Drög að niðurröðun Pepsi Max deildar kvenna 2021

Mótanefnd KSÍ hefur birt drög að leikjum Pepsi Max-deildar kvenna keppnistímabilið 2021 og hefst mótið á leik Þórs/KA og ÍBV 4. maí.

Tveir leikir fara fram 4. maí, en ásamt leiknum á Akureyri mætast Valur og Stjarnan á Origo vellinum. Fyrstu umferðinni lýkur svo með þremur leikjum 5. maí. 

Nýliðarnir byrja báðir á heimaleikjum. Tindastóll, sem er að leika í fyrsta sinni í efstu deild kvenna, fær Þrótt R. í heimsókn á Sauðárkróksvöll. Keflavík mætir Selfoss í sínum fyrsta leik á Nettóvellinum.

Fyrsta umferð

Þór/KA - ÍBV

Valur - Stjarnan

Tindastóll - Þróttur R.

Breiðablik - Fylkir

Keflavík - Selfoss

Lokaumferðin

Þór/KA - Keflavík

ÍBV - Fylkir

Breiðablik - Þróttur R.

Tindastóll - Stjarnan

Valur - Selfoss

Drög að niðurröðun Pepsi Max deildar kvenna