• fös. 08. jan. 2021
  • Mótamál
  • Fræðsla
  • COVID-19

Æfingar og keppni heimilar frá 13. janúar

Tilkynnt hefur verið um breytingar á samkomutakmörkunum sem taka gildi 13. janúar og gilda til 17. febrúar.  Breytingarnar fela m.a. í sér að íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra, og að íþróttakeppnir barna og fullorðinna verða heimilar, en án áhorfenda. 

Á meðal breytinga á samkomutakmörkunum eru þessar (af vef Stjórnarráðsins):

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Starfsemi verður heimil með ströngum skilyrðum. Fjöldi gesta má að hámarki vera helmingur þess sem kveðið er á um í starfsleyfi, eða helmingur þess sem búningsaðstaða gerir ráð fyrir ef gestafjölda er ekki getið í starfsleyfi. Einungis er leyfilegt að halda skipulagða hóptíma þar sem hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Búningsklefar skulu vera lokaðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir mun setja fram ýtarlegar leiðbeiningar um sóttvarnir á heilsu- og líkamsræktarstöðvum.
  • Íþróttaæfingar: Íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými.
  • Íþróttakeppnir: Íþróttakeppnir barna og fullorðinna verða heimilar en án áhorfenda.
  • Skíðasvæði: Skíðasvæðum verður heimilt að hafa opið með takmörkunum samkvæmt reglu 4 í útgefnum reglum skíðasvæðanna í landinu. Í skíðalyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftustól með öðrum, halda skal tveggja metra nálægðarmörk og sömu reglur gilda um grímunotkun og annars staðar.
  • Sviðslistir, bíósýningar og aðrir menningarviðburðir: Á sviði mega vera allt að 50 manns á æfingum og sýningum. Andlitsgrímur skulu notaðar eins og kostur er og tveggja metra nálægðartakmörkun virt eftir föngum. Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 fullorðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar. Gestir skulu sitja í sætum sem skráð eru á nafn og fullorðnir eiga að bera grímu.

Skoða nánar á vef Stjórnarráðsins