Riðill U17 karla í undankeppni EM 2021/22 leikinn í Ungverjalandi
Riðill U17 ára landsliðs karla í undankeppni EM 2021/22 verður leikinn í Ungverjalandi.
Tilkynnt verður um leikvelli síðar. Tvö efstu lið riðilsins fara áfram í milliriðla ásamt þeim fjórum liðum í 3. sæti sem eru með bestan árangur gegn liðunum í efstu tveimur sætum síns riðils.
Ísland er í riðli með Ungverjalandi, Georgíu og Eistlandi.
Leikir í riðlinum:
22. október
Georgía - Ísland
Ungverjaland - Eistland
25. október
Ísland - Eistland
Ungverjalandi - Georgía
28. október
Ísland - Ungverjaland
Eistland - Georgía