Þátttökutilkynning í knattspyrnumót KSÍ 2021 - skila þarf fyrir 10. janúar
Þátttökugögn (þátttökueyðublað og upplýsingar í símaskrá) fyrir knattspyrnumótin 2021 hafa verið birt á vef KSÍ.
Öll þátttökugögn þurfa að berast fyrir 10. janúar.
Vinsamlegast athugið að til þess að þátttökutilkynningin teljist fullgild verður undirritað eintak af þátttökutilkynningunni að berast skrifstofu KSÍ á netfangið: birkir@ksi.is.
Fyrirvari varðandi skráningu keppnisliða í 4. og 3. aldursflokki
Stjórn KSÍ skoðar nú hvort gerðar verði breytingar á keppnisfyrirkomulagi í 3. og 4. aldursflokki. Ef sú vinna leiðir til þess að bjóða þurfi félögum að breyta skráningum, þá verður það tilkynnt sérstaklega.
Ný félög í keppni meistaraflokks
Vakin er athygli á því að öll ný félög sem hefja keppni í meistaraflokki 2021 (deild og/eða bikar) og félög sem ekki hafa tekið þátt í keppni meistaraflokks síðustu þrjú keppnistímabil, ber að leggja fram með þátttökutilkynningunni eftirfarandi viðbótargögn:
• Staðfestingu frá ÍSÍ um stofnun félagsins (ný félög).
• Staðfestingu aðalstjórnar félagsins um heimild til þátttöku.
• Staðfestingu viðkomandi vallaryfirvalda um heimild til afnota af leikvelli.
• Leikmannalista – Lágmark 25 leikmenn.
Sameiginlegt keppnislið – Samningur félaga
Félög sem ákveða að senda sameiginlegt lið til keppni samkvæmt 14. gr. reglugerðar KSÍ um knattspyrnumót, skulu gera um það skriflegt samkomulag og senda stjórn KSÍ til staðfestingar fyrir 10. janúar. Nánari leiðbeiningar er einnig að finna á vef KSÍ.
Upplýsingar í símaskrá KSÍ
Vinsamlegast kynnið ykkur hvaða upplýsingar birtast um ykkar félag á vef KSÍ undir flipanum „Aðildarfélög“ og tilkynnið um allar breytingar.
Ofangreindar upplýsingar ber að senda í tölvupósti: johanno@ksi.is
Af gefnu tilefni eru félögin beðin um að tilkynna KSÍ um allar breytingar á símanúmerum og netföngum. Mikilvægt er að skilaboð frá skrifstofu KSÍ komist ávallt til skila og berist til réttra aðila.