• fim. 10. des. 2020
  • Stjórn
  • Mótamál

Hundrað manna fundur formanna og framkvæmdastjóra

Síðastliðinn föstudag fór fram árlegur formanna- og framkvæmdastjórafundur KSÍ, að þessu sinni rafrænn í gegnum Microsoft Teams.  Á dagskrá fundarins voru ýmis mál, m.a. mótamál og niðurröðun, fjármál hreyfingarinnar, afreksstefna KSÍ var kynnt og farið yfir reglugerðarbreytingar. 

Alls sóttu um eitt hundrað fulltrúar aðildarfélaga fundinn, frá félögum víðs vegar af landinu og úr öllum deildum, formenn og framkvæmdastjórar, auk fulltrúa meistaraflokksráða og unglingaráða.