• þri. 08. des. 2020
  • COVID-19
  • Mótamál
  • Fræðsla

Uppfært: Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum frá 10. desember

Uppfærð frétt.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi 10. desember næstkomandi og gilda til 12. janúar 2021. Breytingarnar eru að mestu í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Þar kemur m.a. sérstaklega fram um íþróttir að „íþróttaæfingar einstaklinga sem fæddir eru 2004 og fyrr eru heimilar með og án snertingar í íþróttum innan ÍSÍ í efstu deild“. 

Nánar í frétt á vef Stjórnarráðsins

Frá ÍSÍ:

Reglur varðandi íþróttastarfið verða eftirfarandi:

  • Öll keppni í íþróttum, bæði barna og fullorðinna, eru óheimil.
  • Íþróttaæfingar einstaklinga fæddra 2004 og fyrr, með snertingum, eru óheimilar innandyra sem utandyra.
  • Íþróttaæfingar einstaklinga fæddra 2004 og fyrr, án snertinga, eru heimilar utandyra.

Æfingar afreksfólks í einstaklingsbundnum íþróttum innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands eru heimilar.

Íþróttaæfingar einstaklinga fæddra 2004 og fyrr, með eða án snertingar, í efstu deild kvenna og karla í hverju sérsambandi innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, eru heimilar.

Hámarksfjöldi í hverju rými er 25 manns. Sameiginleg búningsaðstaða verði lokuð. Sameiginleg áhöld verði sótthreinsuð a.m.k. tvisvar á dag og þess gætt að loftræsting sé í lagi og loftað vel út nokkrum sinnum yfir daginn.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá banni við íþróttastarfi fyrir einstaka viðburði, svo sem vegna alþjóðlegra keppnisleikja hér á landi eða vegna æfinga í næst efstu deild sérsambands Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands ef hún er skilgreind á sama afreksstigi og efsta deild, enda sé gætt fylltu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti.

  • Æfingar sem krefjast snertingar innan bardagaíþrótta eru ekki heimilar.
  • Íþróttaæfingar barna fæddra 2005 og síðar, inni og úti, með og án snertingar eru heimilar með þeim fjöldatakmörkunum sem gilda í skólastarfi.
  • Sund og baðstaðir: Heimilt verður að hafa opið fyrir allt að 50% af hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Börn fædd 2005 og síðar teljast ekki þar með.