Árlegur formanna- og framkvæmdastjórafundur 4. desember
Árlegur formanna- og framkvæmdastjórafundur KSÍ fer fram föstudaginn 4. desember næstkomandi. Fundurinn, sem verður rafrænn í gegnum Microsoft Teams, hefst kl. 16:00 og eru áætluð fundarlok um kl. 18:30. Dagskrá fundarins má sjá að neðan og upplýsingar um skráningu hafa verið sendar til aðildarfélaga KSÍ.
Dagsetning: föstudagur 4. desember 2020
Tími: 16:00-18:30
Fundarform: Rafrænn fundur
Dagskrá:
- Setning fundar - Guðni Bergsson formaður
- Mótamál - Birkir Sveinsson sviðsstjóri innanlandssviðs og Valgeir Sigurðsson formaður mótanefndar
- Fjármál - Guðni Bergsson formaður og Borghildur Sigurðardóttir varaformaður
- Laugardalsvöllur - Guðni Bergsson formaður
- Kynning á afreksstefnu KSÍ - Arnar Þór Viðarsson sviðsstjóri knattspyrnusviðs
- Reglugerðarbreytingar - Haukur Hinriksson lögfræðingur og Gísli Gíslason varaformaður
- Önnur mál
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net