• mið. 25. nóv. 2020
  • Landslið
  • A kvenna

Ísland mætir Slóvakíu á fimmtudag

Ísland mætir Slóvakíu á fimmtudag í undankeppni EM 2022, en leikið er í Senec í Slóvakíu.

Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Þetta er næstsíðasti leikur liðsins í riðlakeppni undankeppni EM 2022 og mæta stelpurnar svo Ungverjalandi þriðjudaginn 1. desember. 

Ljóst er að Svíþjóð endar í efsta sæti riðilsins, en þau þrjú lið sem verða með bestan árangur í öðru sæti riðlanna fara beint áfram í lokakeppnina. Hin sex þjóðirnar fara svo í umspil um þrjú laus sæti. Það er því til mikils að vinna fyrir liðið, en með sigrum gegn bæði Slóvakíu og Ungverjalandi á það góðan möguleika á að komast beint í lokakeppnina.