Byrjunarliðið gegn Írlandi
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Írlandi.
Leikurinn hefst kl. 12:30 að íslenskum tíma og fer fram á Tallaght Stadium í Dublin.
Ein breyting er gerð á byrjunarliðinu frá leiknum gegn Ítalíu, en Kolbeinn Birgir Finnsson kemur inn fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson.
Þetta er síðasti leikur liðsins í undankeppni EM 2021, en leik liðsins gegn Armeníu sem átti að fara fram á miðvikudag hefur verið frestað.
Strákarnir þurfa að vinna leikinn til að eiga möguleika á því að komast í lokakeppni EM 2021.
Byrjunarliðið
Patrik Sigurður Gunnarsson (M)
Alfons Sampsted
Róbert Orri Þorkelsson
Ari Leifsson
Hörður Ingi Gunnarsson
Alex Þór Hauksson
Andri Fannar Baldursson
Willum Þór Willumsson
Kolbeinn Birgir Finnsson
Jón Dagur Þorsteinsson (F)
Sveinn Aron Guðjohnsen