• lau. 14. nóv. 2020
  • Landslið
  • U21 karla

U21 karla mætir Írlandi á sunnudag

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland mætir Írlandi á sunnudag í síðasta leik liðsins í undankeppni EM 2021, en leikið er á Tallaght Stadium í Dublin.

Leikurinn hefst kl. 12:30 að íslenskum tíma og er mikilvægur í baráttu liðsins um að komast í lokakeppni EM 2021.

Strákarnir eru í fjórða sæti riðilsins með 15 stig eftir 8 leiki. Ítalir eru efstir með 19 stig, Írar í öðru með 16 stig og Svíar í því þriðja með 15 stig. Öll hafa spilað átta leiki.

Ísland mætti Ítalíu á Víkingsvelli á fimmtudag og endaði sá leikur með 1-2 sigri Ítala.