Axel Óskar inn í hópinn fyrir Ísak Óla
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ein breyting hefur verið gerð á hóp U21 ára landsliðs karla fyrir leikinn gegn Ítalíu.
Axel Óskar Andrésson kemur inn í hópinn í stað Ísaks Óla Ólafssonar. Ísak Óli kemur síðan til móts við hópinn fyrir leikina gegn Írlandi og Armeníu.
Ísland mætir Ítalíu á Víkingsvelli 12. nóvember, Írlandi 15. nóvember og Armeníu 18. nóvember. Leikirnir gegn Írlandi og Armeníu fara fram ytra.