Leikmenn ársins í Pepsi Max deild karla
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tilkynnt hefur verið hvaða leikmenn voru kosnir bestir og efnilegastir í Pepsi Max deild karla af leikmönnum deildarinnar.
Verðlaunaafhendingin fór fram í Pepsi Max mörkum karla á Stöð 2 Sport.
Leikmaður ársins
Steven Lennon, FH, var valin besti leikmaður ársins, en hann skoraði 17 mörk í 18 leikjum. Hann var einnig markahæsti leikmaður mótsins.
Efnilegasti leikmaður ársins
Valgeir Lunddal Friðriksson, Val, var valin efnilegasti leikmaður deildarinnar í ár.
Þjálfari ársins
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, var valinn þjálfari ársins en Valur varð Íslandsmeistari í ár.
Dómari ársins
Pétur Guðmundsson var valinn dómari ársins í Pepsi Max deild karla.