Tveggja marka tap gegn Svíþjóð
A landslið kvenna tapaði með tveimur mörkum gegn engu fyrir liði Svíþjóðar á Gamla Ullevi í Gautaborg í kvöld, þriðjudagskvöld, í undankeppni EM 2021. Um toppslag í riðlinum var að ræða, en liðin höfðu gert 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli í september.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Svíar, sem fengu brons á HM í Frakklandi 2019, voru ívið meira með boltann. Bæði lið léku sterkan varnarleik og fátt var um marktækifæri, en eina mark hálfleiksins kom á 25. mínútu þegar Sofia Jakobsson skoraði með skoti úr teignum.
Olivia Schough tvöfaldaði forystu sænska liðsins á 57. mínútu með þrumuskoti rétt utan teigs þegar hún smeygði sér á milli íslenskra varnarmanna og skaut óverjandi þrumuskoti fyrir Söndru í íslenska markinu. Ekki var meira skorað í leiknum þrátt fyrir ágætis tilraunir á báða bóga og tveggja marka sigur Svía staðreynd.
Íslenska liðið sýndi góða frammistöðu gegn sterku liði Svía og er, þrátt fyrir tapið, í góðri stöðu til að ná 2. sæti riðilsins. Svíar eru öruggir með efsta sætið eftir sigurinn í kvöld, eru með 19 stig og eiga einn leik eftir. Slóvakía vann í kvöld 2-0 sigur á Lettlandi og er í 3. sæti með 10 stig á eftir Íslandi sem er með 13 stig. Ísland og Slóvakía eiga bæði tvo leiki eftir, þar á meðal innbyrðis viðureign í Slóvakíu 26. nóvember, og síðasti leikur Slóvaka er gegn Svíum.