U21 karla mætir Ítalíu 12. nóvember
UEFA hefur tilkynnt nýjan leikdag fyrir viðureign U21 landsliðs karla við Ítalíu, sem frestað var fyrr í mánuðinum. Leikurinn hefur verið settur á 12. nóvember og hefur niðurröðun annarra leikja riðilsins verið breytt svo hægt sé að koma öllum leikjunum sem eftir eru í riðlinum innan landsleikjagluggans í nóvember.
Viðureignin við Ítalíu er lykilleikur í undankeppni EM, enda er staðan í riðlinum ótrúlega jöfn og spennandi - fjögur lið í harðri keppni um efstu sætin.
Skoða leikina og stöðuna í riðlinum
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net