Stöndum saman - Förum að tilmælum
Stjórn KSÍ hvetur aðildarfélög sín og knattspyrnuhreyfinguna alla til að fylgja vel öllum tilmælum sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra. Á svona stundum verður knattspyrnuhreyfingin og samfélagið allt að standa saman sem ein heild og gera allt sem hægt er í baráttunni við kórónuveiruna. Við munum komast í gegnum þetta saman og sjá fram á betri tíma.
Um tilmæli sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra