KSÍ I þjálfaranámskeiði frestað
Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu hefur sú ákvörðun verið tekin að fresta KSÍ I þjálfaranámskeiði sem halda átti helgina 24.-25. október.
Stefnt er að því að halda námskeiðið 14.-15. nóvember.
Námskeiðið verður auglýst þremur vikum fyrr og í auglýsingunni gefst áhugasömum tækifæri til að skrá sig.