Leikið án áhorfenda
Að beiðni Almannavarna um að íþróttahreyfingin sýni frumkvæði varðandi sóttvarnir hefur stjórn KSÍ ákveðið að að allir leikir í öllum flokkum og aðrir viðburðir á vegum KSÍ fari fram án áhorfenda þar til annað verður ákveðið og nær þessi ákvörðun til leikja sem hefjast eftir kl.14:00 í dag, laugardaginn 19. september (áhorfendur eru leyfðir á leikjum sem hefjast kl. 14:00). Staðan verður endurmetin á mánudagsmorgunn í samráði við yfirvöld og framhaldið ákveðið og tilkynnt eins fljótt og mögulegt verður.