Rafrænt 70. ársþing FIFA
70. ársþing Alþjóða knattspyrnusambandsins (FIFA) var haldið í dag, föstudaginn 18. september. Þingið var rafrænt að þessu sinni, stýrt frá höfuðstöðvum FIFA í Zürich í Sviss, og sátu fulltrúar aðildarlandanna þingið í gegnum fjarfundabúnað. Þingfulltrúar fyrir hönd KSÍ voru Guðni Bergsson formaður, Borghildur Sigurðardóttir varaformaður og Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri.
Smellið hér til að horfa á upptöku frá þinginu
Smellið hér til að skoða dagskrá þingsins og ýmsar upplýsingar
Mynd: Borghildur Sigurðardóttir, Guðni Bergsson og Klara Bjartmarz fylgjast með gangi mála á rafrænu 70. ársþingi FIFA.