U21 karla - Tvær breytingar á hópnum
Myndir - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur þurft að gera tvær breytingar á hóp liðsins vegna meiðsla.
Daníel Hafsteinsson og Finnur Tómas Pálmason hafa dregið sig úr hópnum vegna meiðsla. Í þeirra stað koma Valgeir Valgeirsson og Valgeir Lunddal Friðriksson inn.
Ísland mætir Svíþjóð í undankeppni EM föstudaginn 4. september. Leikurinn hefst kl. 16:30 og fer fram á Víkingsvelli.