Verkefninu Komdu í fótbolta með Mola lokið
Verkefninu "Komdu í fótbolta", sem hefur verið á ferð og flugi í sumar, er lokið.
Moli (Siguróli Kristjánsson) sá um verkefnið og fór hann í 31 heimsókn hringinn í kringum landið.
Settar voru upp skemmtilegar og fjölbreyttar fótboltabúðir á hverjum stað til að efla áhuga iðkenda og styðja við bakið á knattspyrnustarfinu á staðnum.
Mikil ánægja hefur verið með verkefnið á þeim stöðum sem Moli hefur heimsótt og hefur verið frábært að sjá það góða starf sem unnið er um allt land.
Nánar um verkefnið ásamt myndum frá heimsóknum