Breyttir leiktímar í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mótanefnd KSÍ hefur ákveðið nýja leiktíma fyrir leiki í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna.
Leikirnir áttu að vera 11.-12. ágúst, en verða nú 3. september.
Jafnframt hafa undanúrslitin verið færð til 1. nóvember og úrslitaleikur keppninnar 6. nóvember.
8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna
Selfoss - Valur á JÁVERK-vellinum kl. 17:00
Þór/KA - Haukar á Þórsvelli kl. 17:00
ÍA - Breiðablik á Norðurálsvellinum kl. 17:00
FH - KR á Kaplakrikavelli kl. 17:00